Bull & vitleysa

Ég á þetta...

20.08.2008 20:36:15 / Magga

Miðvikudagur

Mamman var að horfa á Nágranna og dóttirin með, ófrísk kona var í einu atriðinu.
Dóttirin: Er hún með barn í maganum?
Mamman: Já
Dóttirin: Er þetta útlenskt barn?
Mamman: Já það er ástralskt. Eigum við að fá okkur kínverskt barn?
Dóttirin: Neeeiiiii, þá þarftu að fá svona kínverskt efni.

Þess má geta að dóttirin er búin að vera með þetta svokallaða efni á heilanum og er mikið að spá í það hvernig pabbinn býr það til og hvar hann geymir það.

Dóttirin: Þegar ég verð 7 ára ætla ég að eignast litla systir.
Mamman: Er það já? En ef þú fengir ekki systir heldur bróðir?
Dóttirin: Það er allt í lagi, en þá þarft þú svona efni.

Mamman var að tala við soninn og vin hans um skólann.
Mamman: Eruð þið að byrja í einhverju nýju fagi í vetur?
Drengirnir: Vitum það ekki, jú dönsku.
Sonurinn: Og kynlífsfræðslu, hahahahahahahahahaha, oojjj.
Mamman: Ok.
Sonurinn: Tungan er kynfæri.
Mamman: Nei tungan er ekki kynfæri.
Sonurinn: Jú maður getur nefnilega sleikt þú veist með henni.
Það þarf ekki að segja neinum það að mamman fékk kast, ekki lærði hann þetta hjá henni. Þessi börn eru að spá í mjög furðulegum hlutum.


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.08.2008 16:36:36 / Magga

Þriðjudagur

Ég er orðin frú, laugardagurinn var alveg yndislegur í alla staði. Takk fyrir okkur.

Dóttirin: Hvar kaupir maður efni sem pabbinn setur í magann á mömmunni til þess að búa til börn?
Mamman: Maður kaupir það ekki, pabbinn býr það til inni í sér.
Dóttirin: Hvernig gerir hann það? Gleypir hann eitthvað efni?
Mamman: Nei hann bara gerir það að sjálfu sér.
Dóttirin: Hvernig setur hann það inn í mömmuna? Sker hann gat á magann á henni?
Mamman: Nei þú lærir það bara seinna...



» 0 hafa sagt sína skoðun

13.07.2008 20:59:26 / Magga

Sunnudagur

Ég er á lífi, bara láta ykkur vita af því, hef bara ekki verið í neinu bloggstuði, geri lítið annað en að vinna, vera uppgefin eftir vinnuna og undirbúa brúðkaupið.
Ég er í stökustu vandræðum með helv.... förin eftir bikiníið síðan í Mexíkó, sé framá að ég verði með tonn af lakki á bringunni til þess að fela förin:s

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.06.2008 19:01:28 / Magga

Mánudagur

Boðskortin eru flest farin af stað, þarf að fara að gera kerti, þarf að fara að sauma gestapoka, þarf að fara að finna skó á allt liðið, þarf að finna mér hárgreiðslustofu, þarf að finna söngvara, þarf að finna prest, þarf að panta kökuna, þarf að panta blóm, þarf að kaupa skreytingar, þarf að gera svo margt...

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.06.2008 17:11:26 / Magga

Útskriftardagur

Ég er útskrifuð, þá er það bara að sækja um leyfið og fá það í gegn, þá verður maður löglegur.

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.06.2008 13:43:45 / Magga

Þriðjudagur

Er komin heim, hef bara verið of þreytt til þess að blogga. Það var æðislegt þarna úti, við vorum gæsaðar og það var bara æði. Við fengum stripp og guð minn góður...ég segi ekki meir :haha:
Ég er byrjuð að vinna og það er mjög skrítið að kynna sig sem hjúkrunarfræðing en ekki hjúkrunarnema 8|
Útskriftin er á laugardaginn, á ennþá eftir að finna mér dress, verð örugglega ekkert voðalega fín.


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.05.2008 09:15:54 / Magga

Laugardagur

Er að drepast úr spenningi fyrir ferðina, er komin með fiðrildi í magann og ég fer ekki fyrr en eftir tvo daga ;) Skólinn er búinn, náði öllu, meira að segja lokaverkefninu, og þá á ég bara eftir að skila verkefninu útprentuðu á skrifstofuna í skólanum (eða Jónsi réttara sagt), og sitja þessa of löngu brautskráningu. Það er sko ekki fyrir mig að sitja í einhverja klukkutíma og hlusta á ræður og geta ekki einu sinni farið á klósettið :s
Úúúú ég er að fara út, get ekki beðið.
Jæja ég er farin til Mexíkó...

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.05.2008 20:36:06 / Magga

Hamingjudagur

Í dag kynnti ég lokaverkefnið og það gekk svo vel og það var svo miklu minna mál en ég hélt að ég næstum skammast mín fyrir að hafa verið svona stressuð :d en ég er alveg rosalega fegin að þetta sé búið. Þarf bara að klára lokaritgerðina og koma henni í prentum og þá er þetta komið. Það lítur út fyrir það að ég verði hjúkrunarfræðingur eftir allt saman...

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.05.2008 00:00:22 / Magga

Úffipúff

Shitturinn, rannsóknardagurinn er á föstudaginn og ég held ég deyji. Er ekki alveg að meika það að standa fyrir framan fullt af fólki og kynna verkefnið. Stundin sem ég hef kviðið fyrir allt mitt nám er að renna upp, æl, en það þýðir bara eitt, ég er að útskrifast svo fáránlega sem það hljómar. Alla vega er ég búin að ná öllum prófum og fór í gegnum þessi fjögur ár án þess að falla í neinu, en sumar einkunnir mættu nú samt alveg vera betri.
Mig langar til að fagna á föstudaginn en ég veit ekki hvað ég á að gera, er að hugsa um að koma börnunum í pössun og vera bara heima að horfa á vídeó með karlinum:s

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.05.2008 11:38:24 / Magga

Föstudagur

Er ekki alveg farin að sjá það að ég útskrifist. Þetta verkefni er verkefni frá helvíti. Það er ekki nóg með að háskólinn sé búinn að pína mann undanfarin fjögur ár heldur þarf hann enda námsferilinn þannig að maður endar nær dauða en lífi við námslok.

Má ekki vera að þessu, þarf að fara að skrifa ritgerð...

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.04.2008 19:22:24 / Magga

Mánudagur

Þetta er stór dagur í lífi mínu. Ég fór í síðasta prófið mitt í dag. Minni fjögurra ára háskólagöngu fer að ljúka, shit...en lokaverkefnið er enn eftir svo ég ætla ekki að lofa neinu með útskriftina.

Það er ekki nóg með það að síðasta prófið hafi verið í dag heldur missti litla barnið mitt sína fyrstu tönn í dag. Hún var svo tillitsöm við mömmu sína að geyma það fram að kvöldmat að missa hana svo ég yrði vitni að þessum merka atburði. Ég er ekki viss um að hún sé jafn spennt að bíða eftir því að mamma hennar fari að missa tennur...af elli:haha:

» 4 hafa sagt sína skoðun

15.04.2008 22:15:23 / Magga

Þriðjudagur

Heilsuháskafyrirbygging....HEILSUHÁSKAFYRIRBYGGING....getur einhver sagt mér hvað í ósköpunum konan er að meina?!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.04.2008 21:27:16 / Magga

Fimmtudagur

Er búin að vera ágæt í bakinu í dag, þar til seinni partinn þá hreinlega gat ég ekki staðið eða gengið um þannig að ég lá bara útaf. Ég eldaði nú samt matinn og gerði allt klárt á meðan karluglan lá uppí sófa og gerði súdoku EFTIR að HANN lagði sig, en hann þurfti að fara út í búð greyið.

Ég er með höfuðverk vinstra megin í höfðinu, þoli ekki hvað ég er oft með höfuðverk :cry:

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.04.2008 12:46:16 / Magga

Miðvikudagur

Það er ekki gaman að vera úti að keyra og það er keyrt aftan á mann, fara svo til afleysingalæknis á heilsugæslunni sem vill svo heppilega til að var á slysó þegar ég var þar í verknámi.

» 3 hafa sagt sína skoðun

03.04.2008 17:47:31 / Magga

Fimmtudagur

Jæja...ég á alla vega einn vin.

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14
Leitarbox